1. Almennar upplýsingar

1.1 GTS ehf. („fyrirtækið”, „við” og „okkur“) er fyrirtæki sem skráð er í Sveitarfélaginu Árborg en heimilisfang fyrirtækisins er Fossnes C, 800 Selfossi.

GTS ehf. sinnir akstri almenningsvagna í Reykjanesbæ á grundvelli þjónustusamnings við sveitarfélagið. GTS heldur jafnframt úti GTS smáforritinu (,,appið‘‘) sem er smáforrit þar sem einstaklingar geta keypt og haldið utan um miða og tímabilskort og notað til þess að greiða fyrir ferðir í almenningsvögnum Reykjanesbæjar.

Appið er aðgangsstýrt miðasölukerfi í Reykjanesbæ. Viðskiptavinir geta keypt far með þrenns konar leiðum, þ.e. greiðslu með reiðufé, staðgreiðslu og appinu.

Hægt er að hafa samband við okkur í síma (+345) 480 1200 eða með því að senda tölvupóst á gts@gts.is.

1.2 Skilmálar þessir gilda um appið og þá þjónustu sem GTS veitir. Með því að hlaða niður, stofna aðgang eða nota appið, samþykkir þú að hafa kynnt þér, skilið og samþykkt skilmála þessa sem bindandi samkomulag milli þín og GTS.

1.3 Við munum tilkynna viðskiptavinum um allar fyrirhugaðar breytingar á þjónustunni í samræmi við skilmála þessa. Slíkar tilkynningar verða sendar í gegnum appið eða á annan sannreynanlegan hátt. Breytingar á skilmálum þessum taka gildi sjö (7) dögum eftir að tilkynning þess efnis er send, nema um ræði öryggisuppfærslur og villuleiðréttingar, en í slíkum tilvikum taka breytingarnar gildi þegar í stað. Áframhaldandi notkun þjónustunnar í kjölfar breytinga felur í sér samþykki notanda fyrir breyttum skilmálum.

2. Fargjöld og miðar

2.1 Fyrirkomulag fargjalda

Appið býður upp á eftirfarandi fargjaldamöguleika:

Einstaka ferðir:

• Staðlað fargjald fyrir fullorðna

Tímabilskort:

• Mánaðarkort fyrir fullorðna

• Árskort fyrir fullorðna

• Árskort fyrir börn

2.2 Afsláttur af fargjöldum

2.2.1 Skilyrði afsláttarfargjalda

Afsláttarfargjöld eru í boði fyrir eftirfarandi hópa:

• Árskort fyrir ungmenni (12-17 ára)

• Árskort fyrir nema 18 ára og eldri

• Árskort fyrir öryrkja

• Árskort fyrir aldraða 67 ára og eldri

Ekki er unnt að kaupa tímabilskort á afsláttarkjörum í GTS appinu. Unnt er að kaupa tímabilskort á afsláttarkjörum í Sundmiðstöð við Sunnubraut, Íþróttamiðstöð Njarðvíkur, Íþróttamiðstöð Stapaskóla og Aðalbókasafni Reykjanesbæjar, Hljómahöll.

2.2.2 Notkun og staðfesting afsláttarfargjalda

• Aðeins þeir sem fullnægja skilyrðum afsláttarfargjalda er heimilt að nota þau. Öðrum er óheimilt að nota afsláttarfargjöld.

• Bílstjórar eða skoðunarmenn á vegum Reykjanesbæjar geta óskað eftir því að farþegi staðfesti rétt sinn til þess að nota afsláttarfargjald. Ef gildri sönnun er ekki framvísað getur það leitt til þess að farþega sé synjað um þjónustu eða til álagningar sekta.

• Farþegi skal alltaf gefa bílstjóra eða skoðunarmanni tækifæri til að staðfesta að rétt fargjald hafi verið greitt.

2.3 Greiðslur og miðar

2.3.1 Greiðslumátar:

Við samþykkjum eftirfarandi greiðslumáta:

• VISA

• Mastercard

• Apple Pay

• Google Pay

• Reiðufé

• Staðgreiðslu

Þú samþykkir að veita réttar, uppfærðar og fullnægjandi kaup- og reikningsupplýsingar vegna allra kaupa á þjónustunni sem GTS veitir samkvæmt skilmálum þessum. Jafnframt samþykkir þú að uppfæra reiknings- og greiðsluupplýsingar án tafar, þar á meðal upplýsingar um netfang, greiðslumáta og gildistíma greiðslukorts, svo hægt sé að ganga frá viðskiptum og hafa samband við þig eftir þörfum.

Allar greiðslur skulu vera í íslenskum krónum. Við áskiljum okkur rétt til þess að gera breytingar á verði fargjalda hvenær sem er, í samræmi við breytingar á gjaldskrá Reykjanesbæjar. Skattar verða lagðir á verð í samræmi við fyrirmæli íslenskra laga á hverjum tíma.

Þú samþykkir að greiða það kaupverð fyrir þjónustuna sem er í gildi við kaupin og heimilar okkur að taka gjald sem nemur þeirri upphæð þegar að þú leggur inn pöntun. Við áskiljum okkur rétt til að leiðrétta villur eða mistök við verðlagningu, jafnvel þó við höfum þegar óskað eftir eða móttekið greiðslu.

Við áskiljum okkur rétt til að neita þjónustupöntunum sem berast okkur. Við höfum jafnframt rétt til þess að takmarka eða fella niður þjónustu sem hefur verið keypt ef notandi verður uppvís af því að misnota þjónustuna eða brjóta skilmála þessa, svo sem með því að kaupa þjónustu á afsláttarkjörum án þess að skilyrði séu uppfyllt fyrir slíkum kaupum.

2.3.2 Staðgreiðslur

• Snertilausar greiðslur eru greiðslur sem eru framkvæmdar með því að leggja debet- eða kreditkort eða tæki (eins og farsíma) með Apple Pay eða Google Pay, að kortalesara.

• Hægt er að nota greiðslukort frá Visa og Mastercard.

• Þegar greitt er með staðgreiðslu, fær viðkomandi miða/kvittun með tímastimpli. Þessi miði gildir í 90 mínútur frá því tímamarki sem kaupin voru framkvæmd.

• Til þess að koma í veg fyrir að notendur þurfi að bera með sér og framvísa prentuðum miðum mælum við með notkun appsins þar sem miðar eru skannaðir með rafrænum hætti.

2.3.3 Greiðslur með reiðufé

• Unnt er að greiða fyrir miða vegna stakra ferða með reiðufé og er þá greitt beint til bílstjóra eða miðar keyptir á skilgreindum miðasölusvæðum.

• Einungis er tekið við greiðslu sem nemur nákvæmlega fargjaldinu en bílstjórar gefa ekki skiptimynt.

• Ef greitt er með reiðufé, fær viðkomandi miða/kvittun með tímastimpli. Miðinn gildir í 90 mínútur frá því tímamarki sem kaupin voru framkvæmd.

2.3.4 Appið

• Appið er aðgengilegt fyrir snjallsíma í App Store og Google Play.

• Í appinu geta viðskiptavinir keypt staka miða eða tímabilskort sem gilda í strætisvagna GTS í Reykjanesbæ.

• Miðar eru virkjaðir með því að velja „Virkja miða“ í appinu og gilda í 90 mínútur frá fyrstu virkjun.

2.4 Miðar og tímabilskort

2.4.1 Almennar reglur

• Til að fara um borð í strætisvagna GTS verður þú að vera með gildan miða, tímabilskort eða annan gildan greiðslumáta.

• Miðar og tímabilskort gilda einungis innan Reykjanesbæjar.

• Ekki er hægt að fá skiptimiða þegar greitt er í gegnum appið, en þetta á við um bæði handhafa þess snjalltækis sem greitt er með og þá sem fylgja honum á sama miða.

2.4.2 Miðar

• Stakir miðar gilda í 90 mínútur, hvort sem þeir eru keyptir sem rafrænir miðar í appinu eða útprentaðir miðar.

• Rafrænir miðar gilda í 90 mínútur frá þeim tíma sem þeir eru virkjaðir í appinu. Prentaðir miðar gilda í 90 mínútur frá því að kaupin voru framkvæmd.

• Þú getur nýtt miðann á 90 mínútna gildistíma hans þegar skipt er um strætisvagn. Ef miðinn týnist eða gildistími hans rennur út verður að greiða fyrir nýja ferð.

2.4.3 Tímabilskort

• Mánaðarkort gilda í einn (1) mánuð.

• Árskort gilda í eitt (1) ár.

• Gildistími tímabilskorta hefst við kaup þeirra en tímabilskort krefjast ekki sérstakrar virkjunar í appinu.

3. Appið

3.1 Hægt er að nota appið í tækjum sem styðjast við IOS eða Android stýrikerfi (hér eftir „snjalltæki”).

3.2 Hægt er að velja milli þess að skrá sig inn á appið með símanúmeri eða netfangi. Með innskráningu með símanúmeri eða netfangi tryggir notandi að miðar, mánaðar- og/eða árskort séu alltaf skráð á það símanúmer eða netfang og glatist því ekki.

3.3 Snjalltæki verða að vera nettengd þegar vara er keypt. Snjalltæki þurfa einnig að vera nettengd, með nægilega rafhleðslu og óbrotinn skjá þegar vara er virkjuð og skönnuð í stætisvagni. Það er á ábyrgð notenda að tryggja að snjalltæki sé nettengt, með nægilega rafhleðslu og óbrotinn skjá.

3.4 Miðar eða tímabilskort, sem keypt eru í appinu, eru borin upp við skanna þegar viðskiptavinur kemur um borð í strætisvagninn. Viðskiptavinur skal virkja miða áður en stigið er um borð í vagninn.

3.5 Ólöglegt er að afrita eða falsa miða í appinu. Þeir sem staðnir eru að notkun falsaðra miða eða korta verða kærðir til lögreglu.

3.6 Hægt er að kaupa vörur í appinu með því að nota kredit-eða debetkort, t.d. VISA, MasterCard, Apple Pay og Google Pay.

3.7 Andvirði keyptrar vöru er gjaldfært af kredit- eða debetkorti viðskiptavinar þegar varan er send á snjalltækið.

3.8 Þegar greiðslukort eru skráð í appinu, er þeim breytt í sýndarnúmer hjá vefþjónustu greiðslumiðlunarfyrirtækis (Rapyd). Greiðslukortanúmerin eru því vistuð á öruggu svæði hjá greiðslumiðlun. GTS ber ekki ábyrgð á greiðslukortaupplýsingum sem sendar eru greiðslumiðlun í gegnum appið.

3.9 Greiðslur vegna einstakra fargjalda og tímabilskorta eru í samræmi við verðskrá Reykjanesbæjar á þeim tíma sem greiðsla fer fram.

3.10 GTS áskilur sér rétt til að senda notendum appsins tilkynningar sem varða þjónustuna með smáskilaboðum.

3.11 Eiganda aðgangs að appinu er einum heimilt að nota aðgang sinn að því. Honum er stranglega bannað að leyfa þriðja aðila að nota aðgang sinn.

3.12 GTS áskilur sér rétt til að loka fyrirvaralaust á aðgang tiltekins notanda/snjalltækis að appinu ef ástæða er til að ætla að notandi appsins hafi misnotað þjónustuna eða veitt rangar upplýsingar við skráningu.

3.13 GTS er eigandi og/eða leyfishafi allra hugverkaréttinda í tengslum við þjónustuna og appið, þar á meðal allra kóða, gagnagrunna, virkni, hugbúnaðar, vefsíðuhönnunar, hljóðs, myndbanda, texta, ljósmynda og grafík, sem og vörumerkja, þjónustumerkja og lógóa sem þar er að finna. Öll brot gegn þessum hugverkaréttindum teljast veruleg brot á skilmálum þessum og verður réttur þess, sem verður uppvís að slíkum brotum, til að nota þjónustuna felldur niður þegar í stað.

4. Endurgreiðslur og gildi farmiða

4.1 Ekki er hægt að fá endurgreiðslu fyrir keypta miða nema í samræmi við það sem fram kemur í skilmálum þessum.

4.2 Ef tæknilegt vandamál kemur í veg fyrir útgáfu eða birtingu miða eða kvittunar þrátt fyrir fullnægjandi greiðslu verður viðskiptavini ekki neitað um þjónustu af þeirri einu ástæðu, að því gefnu að viðkomandi geti með fullnægjandi hætti sannað greiðsluna eða villuna fyrir bílstjóra eða skoðunarmanni, til dæmis með því að sýna greiðslustaðfestingu, bankayfirlit eða villumeldingu á skjá.

4.3 Notandi er ábyrgur fyrir því að tryggja að snjalltæki sitt virki, hafi nægilega rafhleðslu og geti birt nauðsynlegar upplýsingar þegar þess er óskað.

5. Takmörkun ábyrgðar

Við leggjum mikið á okkur til að tryggja áreiðanleika þjónustunnar en eins og í öllum öppum geta komið upp vandamál. Að því marki sem íslensk lög leyfa:

5.1 Takmörkum við ábyrgð okkar gagnvart notanda við þá upphæð sem greidd var fyrir viðkomandi miða eða þjónustu.

5.2 Áskiljum við okkur rétt til að aflýsa eða breyta ferðum sökum ófyrirsjáanlegra aðstæðna sem fyrirtækið hefur ekki stjórn á, svo sem óveður eða verkföll. GTS ber ekki ábyrgð á seinkunum eða aflýsingum sem stafa af slíkum aðstæðum. Við munum láta notendur vita fyrirfram um allar fyrirhugaðar breytingar á þjónustunni sem þeir eru að nota.

5.3 Við berum ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, svo sem tjóni vegna tapaðs tíma, hagnaðar eða gagna, umfram það sem krafist er samkvæmt lögum um neytendavernd á Íslandi.

5.4 Íslensk lög tryggja ákveðin réttindi varðandi gallaða þjónustu. Ef notandi hefur uppi kröfu munum við meðhöndla hana á sanngjarnan hátt í samræmi við þessi réttindi.

6. Verndun persónuupplýsinga og vinnsla þeirra

6.1 Okkur er annt um verndun og öryggi persónuupplýsinga. Við vinnum með persónuupplýsingar eins og nánar er lýst í persónuverndarstefnu appsins sem er aðgengileg hér: (linkur).

6.2 Persónuverndarstefna appsins telst hluti af skilmálum þessum.

Skilmálar

Síðast uppfærðir þann 13. mars 2026

GTS Logo

GTS Pass

Ferðast með strætó í Reykjanesbæ með alla miðana á einum stað.